Sumarfrístund í Breiðholti 2018
Skráning í sumarstarfi Miðbergs er í fullum gangi núna.
Sumar vikur komast færri að en vilja og því mæli ég með að skrá börnin á námskeiðin sem fyrst því að skráningin hefur verið mikil sl. ár og takmarkaður fjöldi plássa í boði.
Námskeiðin eru hrikalega flott og fjölbreytt og eru mismunandi þemu í hverri viku.
Námskeiðin eru frá 9-16 en hægt er að kaupa viðbótargæslu frá 8-9 og 16-17.
Í sumarstarfinu koma börnin með hádegismat og tvö nesti.
Hér er tengill á skráningarsíðuna, og þar er líka hægt að sjá hvaða þema er fyrir hverja viku.
http://fristund.is/namsk…/sumarfristund-fyrir-born-f-05-08-0
Hlökkum til að eyða sumrinu með börnunum þar sem við verðum bæði hér í nágrenninu en einnig á ferð um borgina, sundferðir og alls konar ævintýri.