Skráning fer nú fram í gegnum Rafræna Reykjavík í sumarsmiðjur Tíu12 í Breiðholti. Fyrsta smiðjan hefst þann 11. júní næstkomandi og verður sumrinu lokað með skemmtilegri útilegu þann 18.-19. júlí.
Boðið verður upp á smiðjur í Hólmaseli, Bakkanum og Hundraðogellefu (Miðbergi) og ætti hver og einn að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.
Endilega hafið samband við ykkar félagsmiðstöð ef einhverjar spurningar vakna. Annars hlakkar okkur bara til að sjá ykkur hress með okkur í sumar.