Fréttir og tilkynningar
Skráning í Tíu12 er hafin | 16.05.2012
Skráning í smiðjur fyrir Tíu12 ára starfið í Breiðholti er hafið hjá þinni félagsmiðstöð.
Endilega skoðið dagskránna hér til hliðar (undir ykkar félagsmiðstöð) til að sjá hvað er í boði á hverjum stað.
Miðvikudagurinn 9 maí og föstudagurinn 11. maí. | 08.05.2012
Þessi vika verður mjög skemmtileg í Bakkanum. Á morgun miðvikudag verður keppt í NBA leiknum í playstation 3 og sigurvegarinn kemst upp á stjörnuhimininn.
Á föstudag verður svo kynlífsfræðsla!! Við fáum til okkur hana Siggu Dögg sem er kynlífsfræðingur að mennt. Hún hefur haldið aragrúa af fyrirlestrum um kynlíf fyrir allan aldur við góðar undirtektir! Sama kvöld ætlum við að bjóða krökkunum uppá Vesturbæjarís þeim að kostnaðarlausu.
Þannig við hvetjum alla til að mæta og skemmta sér á föstudagskvöldið með okkur!
Vikan 23-27 apríl | 24.04.2012
Í gær, mánudag, héldum við fótboltamót miklar frábærar unditektir. Á morgun miðvikudag verður lokað hjá okkur í Bakkanum og í staðinn verður Vinaball á fimmtudaginn. Allir mega taka með sér 1 vin á ballið með því skilyrði að foreldrar fylli út eyðublað sem segir til um að þeir beri ábyrgð á unglingnum. Á föstudag verður svo youtubekvöld og seldar pizzur. Það kvöld virkar þannig að unglingarnir finna fyndið myndband á youtube og sýna öllum. Svo er dæmt um besta myndbandið og sigurvegarinn fer upp á stjörnuhimininn.