Gildi Hólmasels
Markmið félagsmiðstöðvarinnar Hólmasels er að bjóða upp á fjölbreytt, skapandi og skemmtilegt starf fyrir börn og unglinga í hverfinu. Í því felst að skapa jákvætt andrúmsloft og umhverfi í frístundastarfi þar sem hægt er að þjálfa lykilfærni hjá börnum og unglingum með áherslu á samskipta- og félagsfærni, virkni og þátttöku ásamt styrkingu sjálfsmyndar. Lagt er upp með að bjóða upp á fjölbreytt viðfangsefni í hverjum mánuði sem höfðar til ólíkra barna og unglinga með mismunandi áhugasvið og tryggja þeim öruggt umhverfi sem þeim líður vel í. Að auki er mikil áhersla lögð á fræðslu gegn fordómum og forvarnir gegn vímuefnum.
Sameiginlegt Nemendaráð félgasmiðstöðvarinnar Hólmasels og Selja- og Ölduselsskóla er starfrækt hvert skólaár undir handleiðslu forstöðu- og aðstoðarforstöðumanns félagsmiðstöðvarinnar. Fulltrúar nemenda í 8.- 10.bekk eru kosnir í byrjun skólaársins og sem sjá þeir meðal annars um að búa til dagskrá og halda utan um viðburði í félagsmiðstöðinni í hverjum mánuði.
Mánaðarlega höldum við stórfundi þar sem unglingarnir gera dagskrá fyrir félagsmiðstöðina. Fundirnir eru opnir og eru öllum unglinum boðið að mæta og taka þátt í að móta starf félagsmiðstöðvarinnar.