Geimklúbbur, Saumaklúbbur og alþjóðlegi Downs-dagurinn
Þá er enn ein vikan að hefjast á þessu skólaári. Tíminn æðir áfram og er fjörið alltaf í fyrirrúmi hjá Álfheimum.
Í hverri viku erum við með okkar hefðbunda frjálsa val ásamt útiveru. Einnig erum við með nýjungar og skemmtilega klúbba á hverjum degi.
Þessa viku byrjum við á að hafa Jógaklúbb og saumaklúbb á mánudag. Á morgun er heill dagur og verður eingöngu tekið á móti þeim börnum sem skráð eru.
Á miðvikudaginn verður listslökun í listasmiðjunni sem er afar vinsælt.
Á fimmtudeginum fögnum við margbreytileikanum þar sem það er Alþjóðlegi Downs-dagurinn. Þá hvetjum við alla til að mæta í litríkum sokkum eða ósamstæðum sokkum.
Á föstudaginn ljúkum við vikunni með hinum geysivinsæla geimklúbb.
Minnum alla á facebooksíðu Álfheima https://www.facebook.com/groups/392289034635239/