Góukaffi á morgun, bolludagur og öskudagur.

 í flokknum: Vinasel

Það sem er á döfinni hjá okkur á næstunni er Góukaffið núna á föstudaginn frá 16:00 til 17:00. Það er í tilefni konudagsins og hvetjum við mæður, systur og ömmur til þess að kíkja við hjá okkur og fá sér kaffisopa og léttar veitingar.

Í næstu viku er bolludagur sem við í Vinaseli höldum nú aldeilis upp á með tilheyrandi gleði.

Á miðvikudaginn er öskudagur og skertur dagur í Seljaskóla. Á skertum dögum opnar Vinasel á sama tíma og aðra daga klukkan 13:40. Á Öskudaginn verður ball í Ölduselsskóla frá 14:30 til 15:30. Við ættum því að verða komin um klukkan 16:00 aftur í Vinasel. Á ballinu verða veitt verðlaun fyrir besta búningana. Við minnum á að við sendum þau börn í íþróttir og kór sem eru skráð og missa þau af ballinu nema að foreldrar láti okkur vita um annað. Börnin eiga ekki að sjá um að koma skilaboðum til okkur heldur eigið þið að gera það, foreldrarnir. Þannig að vinsamlegast látið vita fyrir klukkan 13:00 á miðvikudag ef börnin íþróttum eða öðrum tómstundum og koma með okkur á ballið.

Vetrarfríið byrjar síðan á föstudaginn 28. feb og er til 2. mars. Þá er lokað í Vinaseli og í skólanum.

Nýlegar færslur
Contact Us

We're not around right now. But you can send us an email and we'll get back to you, asap.

Ólæsilegt? Breyttu textanum. captcha txt