Heill dagur 5. október.

 í flokknum: Vinasel

Fyrsti heili dagurinn í Vinaseli er 5. október. Á heilum dögum þarf að skrá börnin sérstaklega. Foreldrar þurfa að greiða aukalega fyrir tíma fyrir hádegi og ef barnið á ekki pláss á þessum dagi. Skráningin fer fram á umsokn.fristund.is, við munum ekki taka við óskráðum börnum. Foreldrar þurfa að skrá börnin sama hvort þau séu allan daginn eða fyrir eða eftir hádegi. Börnin eiga að vera með tvö nesti og klædd eftir veðri.

Síðasti dagurinn til þess að skrá barnið er á sunnudaginn 1.10.18. Í viðhengi eru leiðbeiningar um hvernig þið skráið barnið. Við bendum foreldrum á að ef þið fáið ekki staðfestingapóst um skráningu þá er barnið ekki skráð. Ef þið þurfið frekari leiðbeiningar eða aðstoð þá megið þið endilega hafa samband.

Við bendum foreldrum á að Vinasel er hnetulaust frístundaheimili. Það ber að hafa í huga þegar nesti fyrir börnin er valið.

Í vikunni ætlum við að hafa lýðræðisdag fyrir 2. bekk. Hann felur í sér að við skiptum börnunum í litla hópa og biðjum þau að koma með hugmyndir af hlutum sem snúa að frístundaheimilinu. Við ætlum m.a. að biðja þau um hugmyndir af hvernig leikföng við eigum að kaupa, hvernig klúbba við eigum að vera með og hvað þau vilji gera í útiveru. Við vonum að við fáum margar skemmtilegar og frumlegar hugmyndir frá krökkunum sem við getum notað til þess að bæta starfið okkar. Við vonumst einnig til þess að krakkarnir fái þá tilfinningu að þau hafi áhrif á það sem er að gerast í kringum sig og að þeirra raddir skipti máli. Við munum hafa slíkan dag fyrir 1. bekk á næstunni.

Tölvupósturinn er lesin fyrir til klukkan 12:00. Ef þið þurfið að koma upplýsingum til okkar eftir þann tíma þá þurfið þið að hringja.

Nýlegar færslur
Contact Us

We're not around right now. But you can send us an email and we'll get back to you, asap.

Ólæsilegt? Breyttu textanum. captcha txt