Náttfatanótt og Félagsmiðstöðvadagurinn 2017
Nú næstkomandi föstudag verður haldin náttfatanótt Bakkans. Fín skráning er á nóttina og góð stemmning í unglingahópnum. Það kostar 1000kr á nóttina og innifalið í því er pizza sem kemur á miðnætti. Mæting er á nóttina klukkan 20:00 og endar klukkan 07:00 morguninn eftir. Síðasti dagurinn til þess að skrá sig og borga er á morgun miðvikudag.
Á miðvikudaginn 1. nóvember höldum við svo Félagsmiðstöðvadaginn hátíðlegan. Á Félagsmiðstöðvadaginn verður félagsmiðstöðin Bakkinn opin fyrir gesti og gangandi. Það verður opið frá 18:00-21:00 og í boði verður kaffi, vöfflur og djús. Einnig verður Skrekksatriði Breiðholtsskóla sýnt. Við hvetjum því alla til að kíkja við þetta kvöld og kynna sér starfssemi félagsmiðstöðvarinnar.
Bestu kveðjur,
starfsfólk Bakkans.