Öskudagur í Breiðholti
Frístundaheimilin í Breiðholti héldu öskudaginn hátíðlegan í gær, eins og vera ber. Haldin voru tvö öskudagsböll, annars vegar í Hólabrekkuskóla og hins vegar í Ölduselsskóla. Veitt voru verðlaun fyrir bestu búningana og af meðfylgjandi myndum að dæma voru dómnefndirnar ekki öfundsverðar af hlutskipti sínu. Sjón er sögu ríkari!
Nýlegar færslur