Öskudagur, vetrarfrí og heill dagur.
Takk kærlega fyrir frábært Góukaffi, gaman að sjá svona marga.
Á morgun er Öskudagur og við ætlum í ball í Ölduselsskóla. Við leggjum af stað frá Vinaseli upp úr 14:00 og verðum komin aftur um klukkan 16:00. Við sendum þau börn í íþróttir og aðrar tómstundir sem eru skráð þannig að þið þurfið að láta okkur vita fyrir klukkan 13:00 á morgun ef barnið ætlar að sleppa íþróttum og fara á ballið í staðinn. Vinasel opnar á venjulegum tíma á morgun klukkan 13:40.
Vetrarfríið byrjar á föstudaginn 28. feb og er til 2. mars. Þá er lokað í Vinaseli og í skólanum.
Næsti heili dagur er síðan 23. mars. Skráning er hafinn og líkur henni 16. mars. Skráningin fer fram á umsokn.fristund.is