Skráning fyrir heila daga og kærleiksdagur Miðbergs.

 í flokknum: Vinasel

Takk fyrir frábæra mætingu í foreldrakaffi, við vonum að þið hafið átt góða stund með okkur og komið heim með eitthvað glæsilegt föndur.

Nú fer að styttast í að það loki fyrir skráningu á heilu dagana um jólin, en skráningunni líkur núna á föstudaginn. Það er mikilvægt að allir skrái börnin samviskusamlega ef þið ætlið ykkur að nýta þjónustu okkar á þessum dögum.

Foreldrar þurfa að skrá börnin sama hvort þau séu allan daginn eða fyrir eða eftir hádegi. Foreldrar þurfa að greiða aukalega fyrir tíma fyrir hádegi og ef barnið á ekki pláss á þessum dagi. Skráningin fer fram á umsokn.fristund.is. Við tökum ekki við óskráðum börnum. Börnin eiga að vera með tvö nesti og klædd eftir veðri. Við bendum foreldrum á að það hefur komið oftar en einu sinni fyrir að foreldrar halda að þeir hafi skráð barnið en eitthvað hefur klikkað í ferlinu. Þannig að ef þið hafið ekki fengið staðfestingu í tölvupósti þá er barnið ekki skráð. Dagarnir eru eftirfarandi: 23.12, 27.12, 30.12 og 2.12. Síðasti dagurinn til þess að skrá barnið er 6. des!

Þann 7. desember nk. verður Kærleiksdagur Miðbergs haldinn í sal Hólabrekkuskóla frá klukkan 14-16. Í boði verður, happdrætti með veglegum vinningum, kökubasar, listaverk eftir börnin á frístundaheimilum Breiðholts til sölu

Í ár ætlum við að styrkja sjóð sem kallast „Að grípa Ljónshjartabörn“

Ljónshjarta er stuðningsfélag fyrir ungt fólk sem misst hefur maka og börn þeirra. Maka missir í blóma lífsins er eitt mesta áfall sem hægt er að verða fyrir á lífsleiðinni. Það tekur mjög á að vera í sorg og sinna á sama tíma börnum og heimili.

Ágóði söfnunarinnar fer í sjóð sem kallast „að grípa Ljónshjartabörn“. Markmið sjóðsins er að veita Ljónshjartabörnum aðstoð sem allra fyrst eftir missi.  Aðstoðin er fólgin í samtalsmeðferð og ráðgjöf frá fagaðila.  Það er mikilvægt að grípa Ljónshjartabörn eftir andlát foreldris og veita þeim viðeigandi stuðning. 

Stuðningsfélagið Ljónshjarta var stofnað í nóvember 2013 og hefur það meginmarkmið að að veita jafningjastuðning, fræðslu, upplýsingaöflun og samveru. Félagið skapar vettvang fyrir samverustundir og býður upp á fjölbreytta dagskrá þar sem félagsmenn og börn félagsmanna hittast og njóta þess að vera saman. Hlekkur á viðburðinn á Facebook:

Nýlegar færslur
Contact Us

We're not around right now. But you can send us an email and we'll get back to you, asap.

Ólæsilegt? Breyttu textanum. captcha txt