Söngkeppni Breiðholts
Miðvikudaginn 13. desember næstkomandi verður söngkeppni Breiðholts haldin hátíðleg í Breiðholtsskóla. Ungmenni úr hverfinu ætla að syngja fyrir áhorfendur, en sigurvegarinn mun taka þátt í söngkeppni Samfés fyrir hönd Miðbergs í mars. Einnig mæta JóiPé og Króli á svæðið og trylla lýðinn. Húsið opnar klukkan 19:30 og það er frítt inn, en hverju sæti fylgir happdrætti og veglegir vinningar verða í boði. Við hlökkum til að sjá sem flesta!
Nýlegar færslur