Spæjarar og ráðgátur í Álfheimum
Krakkarnir eru búnir að vera á fullu að æfa sig að verða heimsins bestu njósnararnir og eru orðin annsi góð að þefa upp vísbendingar og komast í gegnum hinar ýmsu þrautir.
Þau byrjuðu vikuna á að búa sér til njósnaramöppu með dulkóðum og kortum af Breiðholti, njósnara nafnspjaldi, földu fyrir hvert öðru tímasprengjur, fórum í leikinn að fanga fánan, kíktum í heimsókn til lögreglunar á Dalvegi og fórum í gegnum lazerbraut.
Við förum síðan seinna í vikunni og spreytum okkur á hreystibrautinni í Ölduselsskóla, finnum hlerunarhnappa og kíkjum í sund.
Á föstudaginn fá svo allir krakkarnir viðurkenningarskjal um að nú séu þau orðin að sönnum Breiðholtsnjósnurum.