Sumardagurinn fyrsti

 í flokknum: Félagsmiðstöðvar (10-16 ára), Frístundaheimili (6-9ára), Hólmasel

Sumardagurinn fyrsti verður haldinn hátíðlegur í Hólmaseli eins og undanfarin ár. Dagskráin hefst klukkan 13:30 og lýkur klukkan 16:30. Seldar verða grillaðar pylsur, gos, djús og súkkulaði og skátafélagið Segull verður líka með candyfloss sölu við tjörnina. Það verða hoppukastalar á staðnum og boðið upp á andlitsmálningu í Hólmaseli að kostnaðarlausu. Sigurvegarar Breiðholt got talent koma fram klukkan 14:30, dans Brynju Péturs klukkan 15 og leikhópurinn Lotta klukkan 15:45. Vonumst til að sjá sem flesta fagna sumrinu með okkur í Hólmasel á fimmtudaginn.

Nýlegar færslur
Contact Us

We're not around right now. But you can send us an email and we'll get back to you, asap.

Ólæsilegt? Breyttu textanum. captcha txt