Vertu með í að móta nýja menntastefnu

 í flokknum: Álfheimar, Bakkasel, Bakkinn, Félagsmiðstöðvar (10-16 ára), Frístundaheimili (6-9ára), Hellirinn, Hólmasel, Hraunheimar, Hundraðogellefu, Regnboginn, Vinaheimar, Vinasel

Ný menntastefna fyrir Reykjavíkurborg fram til ársins 2030 er í mótun. Útgangspunktur hennar er barnið sjálft.

Leitað er eftir samráði og þátttöku allra borgarbúa við gerð stefnunnar. Leitast verður við að ná fram skoðunum borgarbúa á því hvaða færni 18 ára einstaklingar eiga að hafa öðlast fyrir tilstuðlan skóla- og frístundastarfsins á árinu 2030.

Á vormisserinu hafa verið haldnir hugarflugsfundir með stjórnendum og starfsfólki í skóla- og frístundastarfinu í borginni og með börnum og foreldrum. Á grundvelli þeirra funda hafa verið settir fram sjö meginfærniþættir sem stefna skuli að í skóla- og frístundastarfinu. Næsta skref er að fá fram skoðanir borgarbúa á þessum þáttum og bjóða þeim að setja fram sínar hugmyndir að nýjum.

Fram til 10. júní verður opið samráð á íbúavefnum Betri Reykjavík, á vefslóðinni betrireykjavik.is.Þar geta borgarbúar forgangsraðað hugmyndum að stefnumiðum í menntamálum, sett fram sínar eigin, fært fram rök með og á móti og skiptst á skoðunum.

Á haustmánuðum verður svo aftur boðið til samráðs á Betri Reykjavík um hvaða breytingar þurfi að gera á skóla- og frístundastarfinu til að laða fram þá hæfni sem mestu máli skiptir að mati borgarbúa.

Þetta er í fyrsta sinn sem allir borgarbúar eiga beina aðkomu að því að móta stefnu og framtíðarsýn borgarinnar í ákveðnum málaflokki. Börnin og skóla- og frístundastarf varðar okkur öll og því er þín skoðun og þátttaka mikilvæg.

Vertu með í að móta áherslur í menntastefnunni fram til ársins 2030 á betrireykjavik.is

Nýlegar færslur
Contact Us

We're not around right now. But you can send us an email and we'll get back to you, asap.

Ólæsilegt? Breyttu textanum. captcha txt