Hér kemur dagskrá vikunnar en þessa vikuna er íþróttavika. Við munum á hverjum degi kynna börnin fyrir einhverri íþrótt í útiverunni og hvetja þau til að fara í hreyfileiki. Á föstudaginn verður svo smá haustfagnaður hjá okkur þar sem ykkur er boðið að koma í heimsókn til okkar milli kl. 15 og 16 og spreyta ykkur á íþróttagreinunum með börnunum og skoða frístundaheimilið. Hlökkum til að sjá ykkur sem allra flest.

Við minnum á að nauðsynlegt er að hafa börnin klædd eftir veðri og með aukaföt í töskunni en á hverjum degi er útivera í Bakkaseli.
Strax eru byrjaðir að safnast saman óskilamunir hjá okkur og hvetjum við ykkur til að líta reglulega í kassana hjá okkur.

Minni á að skráning á langan dag þann 2. okt. er í fullum gangi en seinasti skráningardagur er 25. september.