Búningar, Harry Potter og næsti heili dagur.

 í flokknum: Vinasel

Í síðustu viku var þvílíkt fjör hjá okkur í Vinasel fyrir vetrarfrí. Á bolludeginum fengu börnin bollur hjá okkur að borða og svo var konudagskaffið hjá okkur líka þann dag og viljum við þakka öllum sem komu til okkar í kaffi og föndur, æðislegt að fá ykkur í heimsókn! Á miðvikudeginum var öskudagur og þá var slegið köttinn úr tunnunni og fengu börnin skopparabolta í verðlaun. Viðurkenningarskjal fyrir bestu búningana í búningakeppninni fengu þau Arndís Ágústa í fyrsta bekk og Jón Tómas í öðrum bekk enn erfitt var að velja þar sem öll börnin voru í glæsileg í sínum búningum! Svo enduðum við vikuna á búningaballi.

Í þessari viku erum við að undirbúa fyrir Harry Potter partý sem verður haldið 6. Mars þar sem við munum horfa á Harry Potter og leyniklefinn. Alla vikuna verður föndrað og skreytt Vinasel í Harry Potter þema og á fimmtudaginn fá börnin svo að kjósa hvað þau vilja borða á mánudeginum.

Nýlegar færslur
Contact Us

We're not around right now. But you can send us an email and we'll get back to you, asap.

Ólæsilegt? Breyttu textanum. captcha txt