Föstudagspistill Regnbogans

 í flokknum: Óflokkað, Regnboginn

Vikurnar eru farnar að líða ansi hratt hjá okkur og styttist óðum í skólalok. Við höfum brasað ýmislegt undanfarna daga við vorum td. með glimrandi flott eurovision partý í síðustu viku, Tanja kom til okkar og við byggðum pappavirki í salnum og svo fórum við í fallhlífarleiki við tjörnina svo fátt eitt sé nefnt.

Í næstu viku ætlum við svo að vera með lokahátíð þar sem við gerum okkur glaðan dag með börnunum föstudaginn 4. júní.

Síðasti starfsdagur vetrarins er miðvikudagurinn 9. júní.

Sumarstarfið okkar hefst svo mánudaginn 14. júní. Við hvetjum ykkur til að skrá börnin fljótt því námskeiðin eru að fyllast. Allar nánari upplýsingar á www.fristund.is

Einnig er enn opin skráning í Regnbogann fyrir næsta vetur.

Nýlegar færslur
Contact Us

We're not around right now. But you can send us an email and we'll get back to you, asap.

Ólæsilegt? Breyttu textanum. captcha txt