Frístundaheimilið Alfheimar

Álfheimar er frístundaheimili fyrir börn úr 1.-2. bekk í Hólabrekkuskóla og er rekið af frístundamiðstöðinni Miðbergi. Forstöðumaður er Berglind Ósk Guðmundsdóttir. Aðstoðaforstöðumaður er Olga Dröfn Ingólfsdóttir.

Í Álfheimum er opið alla daga frá kl .13:40 og til kl. 17:00. Á starfsdögum skóla, foreldraviðtalsdögum og í jóla og páskaleyfi er opið allan daginn í Álfheimum frá kl. 08:00 – 17:00 að undangenginni skráningu. Greitt er sérstaklega fyrir lengda viðveru á þessum dögum.
Álfheimar er lokað í vetrarleyfi skólans.

Frístundaheimilið Álfheimar er starfrækt í Hólabrekkuskóla.  Við höfum haft aðgang að matsali, tölvuveri og bókasafni skólans.

Börnin mæta í Álfheima kl. 13:40.
Alla daga er útivera fyrir 1.- 2. bekk.
Fastir liðir eru klúbba- og smiðjustarf svo sem litað og föndrað í listasmiðjunni, perlað og hinu ýmsu hlutir bygðir úr legó og kapplakubbum. Einnig fylgjum við börnum sem stunda íþróttir hjá ÍR daglega í  rútu sem keyrir þau á æfingar.

Klúbba- og smiðjustarf er í boði eftir útiveru, eða á milli klukkan 15 og 16 – 16.30. Þá er einnig í boði að fara í val. Meðal þess sem hefur verið í boði má nefna njósnaraklúbb, slökunarklúbb, útivistarklúbb, tilraunaklúbb, bakstursklúbb, spilaklúbb, margvíslegar listasmiðjur og föndur og margt fleira. Auk þess voru starfræktir sérstakir klúbbar í tengslum við hæfileikakeppni, leiklistarsíningu  frístundaheimilanna.

Starfsmenn

Starfsmenn

  • Berglind Ósk Guðmundsdóttir
    Berglind Ósk Guðmundsdóttir Forstöðumaður frístundaheimilið Álfheimar

    Hún/she

    Sími: 695-5139

  • Olga Dröfn Ingólfsdóttir
    Olga Dröfn Ingólfsdóttir Aðstoðarforstöðumaður Frístundaheimilið Álfheimar

    Hún/she

    Sími: 665-4820

  • Elva Dögg
    Elva Dögg FRÍSTUNDALEIÐBEINANDI M/UMSJÓN

    Hún/she

    • Jedrzej
      Jedrzej frístundarráðgjafi

      Hann/he

      • Theodora
        Theodora frístundarráðgjafi

        Hún/she

        • Sylvía
          Sylvía Frístundaleiðbeinandi

          Hún/she

          • Salka
            Salka frístundarleiðbeinandi

            Hún/she

            • Job
              Job Frístundarráðgjafi

              Hann/he

              • Benedikt
                Benedikt Frístundaleiðbeinandi

                Hann/he

                Handbók
                Álfheimar 2020-2021 by Tanja Mantel
                Síðdegishressing

                Daglega bjóðum við upp á ávexti og grænmeti frá 15.30 til 16.00. Við leggjum mikið upp úr fjölbreytilegu úrvali og höfum meðal annars haft epli, banana, rófur, melónur, perur, mangó, ananas, paprikur, gulrætur, gúrkur og fleira.

                Boðið er upp á síðdegishressingu frá því að börnin mæta og til kl. ca. 14.30. Áhersla er lögð á það við börnin að þau beri sjálf ábyrgð á að borða, en þó er oft nauðsynlegt að minna þau á að fara í matsalinn.

                Reynt er að leggja áherslu á gæði hráefnis og hollustu þegar kemur að síðdegishressingunni. Stuðst er við markmið Lýðheilsustöðvar um hollustu á frístundaheimilum við gerð matseðils. Í Álfheimum er vatnsvél og einnig geta börnin fengið sér léttmjólk með síðdeigishressinguni.

                Dæmi um matseðil er: Mánudagur – AB-léttmjólk með ávöxtum og hnetlausu musli, þriðjudagur – Trefjaríkt brauð og álegg (egg, kotasæla, grænmeti og kjúklingaálegg), miðvikudagur –  Grófar pítur með grænmeti og kjúklingaskinku, fimmtudagur – Ávaxta- og grænmetishlaðborð, föstudagur – Hreint skyr og frosnir ávextir.

                Við hvetjum börnin til að vera sjálfstæð í matsalnum, eins og að smyrja sjálf, en við erum ávallt innan handar og aðstoðum börnin eins og þarf.

                Contact Us

                We're not around right now. But you can send us an email and we'll get back to you, asap.

                Ólæsilegt? Breyttu textanum. captcha txt