Frístundaheimilið Bakkasel

Bakkasel er frístundaheimili fyrir börn úr 1.-4. bekk í Breiðholtsskóla og er rekið af frístundamiðstöðinni Miðbergi. Forstöðumaður er Tryggvi Dór Gíslason. Aðstoðarforstöðukona er Hafrún Ósk Hafsteinsdóttir. Aðstoðarmaður forstöðumanns  er Patrekur Litríkur Leó Róbertsson

Í Bakkaseli er opið alla daga frá kl .13:40 og til kl. 17:00. Á starfsdögum skóla, foreldraviðtalsdögum og í jóla og páskaleyfi er opið allan daginn í Bakkaseli frá kl. 08:00 – 17:00 að undangenginni skráningu. Greitt er sérstaklega fyrir lengda viðveru á þessum dögum.
Bakkasel er lokað í vetrarleyfi skólans.

Frístundaheimilið Bakkasel er starfrækt í fjórum færanlegum kennslustofum á lóð Breiðholtsskóla. Fyrsti og annar bekkur eru í þremur samliggjandi skúrum, en þriðji og fjórði bekkur er í skúrum við hlið sundlaugar Breiðholtsskóla.

Börnin mæta í Bakkasel kl. 13:40.
Alla daga er útivera fyrir 1.- 4. bekk.
Fastir liðir eru félagsmiðstöðin Bakkinn, útivera klúbba- og smiðjustarf ýmiss konar. Auk þessa er frjáls leikur stór hluti starfsins, einkum hjá yngstu börnunum . Einnig fylgjum við börnum sem stunda íþróttir eða aðrar tómstundir daglega í rútu sem keyrir þau á æfingar.

Klúbba- og smiðjustarf er í boði eftir útiveru, eða á milli klukkan 15 og 16 – 16.30. Þá er einnig í boði að fara í val. Meðal þess sem hefur verið í boði má nefna tískuklúbb, prjónaklúbb, útivistarklúbb, vísindaklúbb, bakstursklúbb, spilaklúbb, margvíslegar listasmiðjur og föndur og margt fleira. Auk þess voru starfræktir sérstakir klúbbar í tengslum við hæfileikakeppni, leiklistar- og kvikmyndahátíðir frístundaheimilanna.

Daglega bjóðum við upp á ávexti og grænmeti frá 15.00 til 16.00. Við leggjum mikið upp úr fjölbreytilegu úrvali og höfum meðal annars haft epli, banana, appelsínur, melónur, perur, vínber, ananas, paprikur, gulrætur, gúrkur og fleira.

Boðið er upp á síðdegishressingu frá því að börnin mæta og til kl. ca. 14.20. Þar sem matsalurinn tekur aðeins um fjörutíu manns í sæti er þessi háttur hafður á frekar en að allir borði í einu. Síðdegishressing er hluti af valtöflu Bakkasels og því er matsalnum hvorki skipt eftir kyni eða bekkjum. Áhersla er lögð á það við börnin að þau beri sjálf ábyrgð á að borða, en þó er oft nauðsynlegt að minna þau á að fara í matsalinn.

Reynt er að leggja áherslu á gæði hráefnis og hollustu þegar kemur að síðdegishressingunni. Stuðst er við markmið Lýðheilsustöðvar um hollustu á frístundaheimilum við gerð matseðils. Í matsalnum er vatnsvél og einnig geta börnin fengið sér léttmjólk alla daga.

Dæmi um matseðil er: Mánudagur – AB-léttmjólk með ávöxtum, musli og hnetum, þriðjudagur – Trefjaríkt brauð og álegg (egg, kotasæla, grænmeti og kjúklingaálegg), miðvikudagur –  Grófar pítur með grænmeti og kjúklingaskinku, fimmtudagur – Ávaxta- og grænmetishlaðborð, föstudagur – Hreint skyr og frosnir ávextir.

Við hvetjum börnin til að vera sjálfstæð í matsalnum, eins og að smyrja sjálf, en við erum ávallt innan handar og aðstoðum börnin eins og þarf.

Aðgerðaáætlun Bakkasels

Starfsmenn

Starfsmenn

  • Tryggvi Dór Gíslason
    Tryggvi Dór Gíslason Forstöðumaður frístundaheimilið Bakkasel

    Hann/he

    Sími: 695-5039

  • Hafrún Ósk Hafsteinsdóttir
    Hafrún Ósk Hafsteinsdóttir Aðstoðarforstöðukona Frístundaheimilið Bakkasel

    Hún/she

    Sími: 664-8357

  • Amadeusz Korzeniewski
    Amadeusz Korzeniewski Frístundaleiðbeinandi

    Hann/he

    • Bethany Rebecca Porter
      Bethany Rebecca Porter Frístundaráðgjafi

      Hún/she

      • Elena Bautista Renegado
        Elena Bautista Renegado Frístundaleiðbeinandi

        Hún/she

        • Valentina Shevchenko
          Valentina Shevchenko Frístundaleiðbeinandi

          Hún/she

          ÍR-rútan

          ÍR-Rútan
          Alla daga ekur ÍR rútan hring um hverfið þar sem hún stoppar á öllum frístundaheimilum og sækir þau börn sem eiga að fara á æfingu hjá ÍR.

          ÍR rútan þjónar ÍR-ungum. Vagninn leggur af stað frá austurbergi og kemur við á eftirtöldum stöðum: Austurberg íþróttahús, Breiðholtsskóli,  Ölduselsskóli,  Seljaskóli,  ÍR-heimili,  Austurberg íþróttahús, Breiðholtsskóli,  ÍR-heimili,  Ölduselsskóli,  Seljaskóli,  ÍR-heimili,  Seljaskóli, Breiðholtsskóli,  Austurberg íþróttahús.

          Starfsmaður  fylgir börnunum í vagninum. ÍR rútan byrjar og endar í austurbergi. Rútan leggur af stað kl 13:55.

          (www.ir.is/ir-ungar)

          Handbók

          Bakkasel

          Contact Us

          We're not around right now. But you can send us an email and we'll get back to you, asap.

          Ólæsilegt? Breyttu textanum. captcha txt