Frístundaheimilið Vinasel

Vinasel er frístundaheimili fyrir börn úr 1.-2. bekk í Seljaskóla og er rekið af frístundamiðstöðinni Miðbergi. Forstöðumaður er Magnús Loftsson. Aðstoðarforstöðumaður er Jolanta Maszkiewicz.

Í Vinaseli  er opið alla daga frá kl .13:40 og til kl. 17:00. Á starfsdögum skóla, foreldraviðtalsdögum og í jóla og páskaleyfi er opið allan daginn í Vinaseli frá kl. 08:00 – 17:00 að undangenginni skráningu. Greitt er sérstaklega fyrir lengda viðveru á þessum dögum.
Vinasel er lokað í vetrarleyfi skólans.

Frístundaheimilið Vinasel er starfrækt í sér húsi í Seljaskóla. Við höfum haft aðgang að félagsmiðstöð, íþróttasal, tölvuveri og bókasafni skólans.

Börnin mæta í Vinaseli kl. 13:40.
Alla daga er útivera fyrir 1.- 2. bekk.
Fastir liðir eru tölvuver, íþróttasalur, bókasafn og klúbba- og smiðjustarf.

Einnig fylgjum við börnum sem stunda íþróttir hjá ÍR daglega í  rútu sem keyrir þau á æfingar. Klúbba- og smiðjustarf er í boði eftir útiveru, eða á milli klukkan 15 og 16 – 16.30. Þá er einnig í boði að fara í val. Meðal þess sem hefur verið í boði má nefna keiluklúbb,fótboltaspilaklúbb, prjónaklúbb, útivistarklúbb, vísindaklúbb,bakstursklúbb, spilaklúbb, margvíslegar listasmiðjur og föndur og margt fleira. Auk þess voru starfræktir sérstakir klúbbar í tengslum við hæfileikakeppni, leiklistar- og kvikmyndahátíðir frístundaheimilanna.

Daglega bjóðum við upp á ávexti og grænmeti frá 15.40 til 16.30. Við leggjum mikið upp úr fjölbreytilegu úrvali og höfum meðal annars haft epli, banana, appelsínur, melónur, perur, vínber, ananas, paprikur, gulrætur, gúrkur og fleira.

Boðið er upp á síðdegishressingu frá því að börnin mæta og til kl. ca. 14.20.

Áhersla er lögð á það við börnin að þau beri sjálf ábyrgð á að borða, en þó er oft nauðsynlegt að minna þau á að fara í matsalinn. Reynt er að leggja áherslu á gæði hráefnis og hollustu þegar kemur að síðdegishressingunni. Stuðst er við markmið Lýðheilsustöðvar um hollustu á frístundaheimilum við gerð matseðils.

Í matsalnum er vatnsvél og einnig geta börnin fengið sér léttmjólk alla daga.

Dæmi um matseðil er: Mánudagur – AB-léttmjólk með ávöxtum, hnetulaust musli og hnetum, þriðjudagur – Trefjaríkt brauð og álegg (egg, kotasæla, grænmeti og kjúklingaálegg), miðvikudagur – Grófar pítur með grænmeti og kjúklingaskinku, fimmtudagur – Ávaxta- og grænmetishlaðborð, föstudagur – Hreint skyr og frosnir ávextir.

Við hvetjum börnin til að vera sjálfstæð í matsalnum, eins og að smyrja sjálf, en við erum ávallt innan handar og aðstoðum börnin eins og þarf.

Starfsmenn

Starfsmenn

  • Magnús Loftsson
    Magnús Loftsson Forstöðumaður frístundaheimilið Vinasel

    Hann/he

    Sími: 695-5038

     

  • Jolanta K. Maszkiewicz
    Jolanta K. Maszkiewicz Aðstoðarforstöðukona Frístundaheimilið Vinasel

    Hún/she

    Sími: 664-7686

  • Eyþór
    Eyþór Frístundaleiðbeinandi m/umsjón
    • Klaudia
      Klaudia FRÍSTUNDARÁÐGJAFI
      • Helga Praní Hafsteinsdóttir
        Helga Praní Hafsteinsdóttir Aðstoðarmaður forstöðumanns frístundaheimilið Vinasel
        • Pinchas
          Pinchas FRÍSTUNDALEIÐBEINANDI M/UMSJÓN
          • Chloe
            Chloe FRÍSTUNDARÁÐGJAFI
            • KHUSHAALI
              KHUSHAALI FRÍSTUNDARÁÐGJAFI
              • Hrafn
                Hrafn frístundarleiðbeinandi
                Handbók
                Vinasel by Magnús Loftsson

                Vinasel

                Contact Us

                We're not around right now. But you can send us an email and we'll get back to you, asap.

                Ólæsilegt? Breyttu textanum. captcha txt