Heilir dagar um jól.

 í flokknum: Vinasel

Jæja þá er komið að því. Heilir dagar um jólin!. Við höfum skráninguna eins og venjulega en við vitum auðvitað ekki hvernig ástandið verður. Vonandi verðum við laus úr þessari hólfa skiptingu og getum nú aldeilis gert eitthvað skemmtilegt með börnunum um jólin. Það verða heilir dagar 21. des, 22. des. 23. des, 28. des, 29. des og 30. des. Skráning er til 11.12.20. Á heilum dögum þarf að skrá börnin sérstaklega. Foreldrar þurfa að greiða aukalega fyrir tíma fyrir hádegi og ef barnið á ekki pláss á þessum dagi. Skráningin fer fram á Vala.is, við munum ekki taka við óskráðum börnum. Foreldrar þurfa að skrá börnin sama hvort þau séu allan daginn eða fyrir eða eftir hádegi. Börnin eiga að vera með tvö nesti og klædd eftir veðri. Við bendum foreldrum á að það hefur komið oftar en einu sinni fyrir að foreldrar halda að þeir hafi skráð barnið en eitthvað farið úrskeiðis í ferlinu. Þannig að ef þið hafið ekki fengið staðfestingu í tölvupósti þá er barnið ekki skráð.

Í viðhengi eru leiðbeiningar um skráningu. Minnum fólk á að fara inn á Vala.is. Þar í horninu uppi hægra megin er mynd af lás. Þar skráir fólk sig inn í Vala-Frístund-Vetur.

Tölvupósturinn er lesin fyrir til klukkan 12:00. Ef þið þurfið að koma upplýsingum til okkar eftir þann tíma þá þurfið þið að hringja.

Minnum á að ef þið ætlið að breyta fjölda daga í vistun barnsins þá þarf að gera það fyrir 15. hvers mánaðar

Nýlegar færslur
Contact Us

We're not around right now. But you can send us an email and we'll get back to you, asap.

Ólæsilegt? Breyttu textanum. captcha txt