Heill dagur 23.1, bóndadagskaffi og það sem er framundan.

 í flokknum: Vinasel

Búin að vera mikil veikindi með starfsmanna hjá okkur núna sem af er mánuðinum en vonandi fer það að lagast. Við erum með heilmikið af verkefnum sem bíða okkar og okkur hlakkar til að byrja á.

Næsti heili dagur hjá okkur er 23.1.23 Þá er hægt að skrá börnin í lengda viðveru í Vinaseli. Það er hægt að skrá börnin hálfan eða heilan dag og líkur skráningu á mánudaginn (16.1.23). Á heilum dögum þarf að skrá börnin sérstaklega óháð því hvort barnið er hálfan eða heilan dag. Foreldrar þurfa að greiða aukalega fyrir tíma fyrir hádegi og ef barnið á ekki pláss á þessum dagi. Skráningin fer fram á Vala.is, við munum ekki taka við óskráðum börnum. Börnin eiga að vera með tvö nesti og klædd eftir veðri. Við bendum foreldrum á að það hefur komið oftar en einu sinni fyrir að foreldrar halda að þeir hafi skráð barnið en eitthvað farið úrskeiðis í ferlinu. Þannig að ef þið hafið ekki fengið staðfestingu í tölvupósti þá er barnið ekki skráð.

Við ætlum að hafa bóndagaskaffi 26.1.23 á milli 16:30 og 18:00. Við hvetjum þá feður/afa eða aðra áhugasama um að kíkja til okkar í smá kaffisopa.

Við höfum aðgang að nokkrum Ukulele og ætluðum að vera með ukulele klúbb og vonandi náum við að kenna áhugasömum börnum nokkur grip.  Næstu vikur er Harry Potter þema hjá okkur í Vinaseli. Við skiptum börnunum upp í „heimavistir“, föndrum eitthvað skemmtilegt og reynum fyrir okkur í Quidditch. Hæfileikakeppni frístundaheimilanna fer síðan fram 10. febrúar. Við ætlum að byrja að æfa í næstu viku. Við verðum með forkeppni en erum ekki alveg búin að ákveða dagsetninguna á henni. Tvö atriði komast síðan áfram í aðalkeppnina 10. feb

Það er best að hringja í mætingarsímann okkar ef þið þurfið að heyra í okkur eftir hádegi: 664-4330

Nýlegar færslur
Contact Us

We're not around right now. But you can send us an email and we'll get back to you, asap.

Ólæsilegt? Breyttu textanum. captcha txt