Heill dagur 26.1 og skráning til 22.1.

 í flokknum: Vinasel

Á þriðjudaginn, 26. janúar er heill dagur hjá okkur í Vinaseli. Skráning er til 22.1.21. Á heilum dögum þarf að skrá börnin sérstaklega. Foreldrar þurfa að greiða aukalega fyrir tíma fyrir hádegi og ef barnið á ekki pláss á þessum dagi. Skráningin fer fram á Vala.is, við munum ekki taka við óskráðum börnum. Foreldrar þurfa að skrá börnin sama hvort þau séu allan daginn eða fyrir eða eftir hádegi. Börnin eiga að vera með tvö nesti og klædd eftir veðri. Við bendum foreldrum á að það hefur komið oftar en einu sinni fyrir að foreldrar halda að þeir hafi skráð barnið en eitthvað farið úrskeiðis í ferlinu. Þannig að ef þið hafið ekki fengið staðfestingu í tölvupósti þá er barnið ekki skráð.

Við erum auðvitað enn þá hólfaskipt í Vinaseli en það er búið að auka svigrúm okkar aðeins. Við erum því að vonast eftir að geta farið að setja góðan kraft í dagskránna okkar og sett af stað skemmtileg verkefni fyrir börnin..

 

Nýlegar færslur
Contact Us

We're not around right now. But you can send us an email and we'll get back to you, asap.

Ólæsilegt? Breyttu textanum. captcha txt