Heill dagur á föstudaginn, síðasti dagurinn til að skrá börnin er í dag.

 í flokknum: Vinasel

Við höfum verið að gera ýmislegt á Vinaseli síðustu vikur. Við settum af stað pennavinaklúbb og ætlum við að vera í samstarfi við frístundarheimilið í Ölduselsskóla. Nokkrir krakkar úr 2. bekk eru búin að skrifa bréf til krakka í Ölduselskóla og nú erum við að bíða eftir svari. Við höfum verið að fá Tönju, starfsmann Miðbergs, í heimsókn með alls konar skemmtilegt föndur sem krakkarnir hafa verið að gera. Á föstudaginn fórum við í karaoke við góðar undirtektir.

  1. október er skipulagsdagur í Seljaskóla.  Þá er hægt að skrá börnin í lengda viðveru í Vinaseli. Það er hægt að skrá börnin hálfan eða heilan dag og líkur skráningu 11. október. Á heilum dögum þarf að skrá börnin sérstaklega óháð því hvort barnið er hálfan eða heilan dag. Foreldrar þurfa að greiða aukalega fyrir tíma fyrir hádegi og ef barnið á ekki pláss á þessum dagi. Skráningin fer fram á Vala.is, við munum ekki taka við óskráðum börnum. Börnin eiga að vera með tvö nesti og klædd eftir veðri. Við bendum foreldrum á að það hefur komið oftar en einu sinni fyrir að foreldrar halda að þeir hafi skráð barnið en eitthvað farið úrskeiðis í ferlinu. Þannig að ef þið hafið ekki fengið staðfestingu í tölvupósti þá er barnið ekki skráð.

Í október er vetrarleyfi í skólum og frístundaheimilum í Reykjavík. Þetta eru dagarnir 22.-26. október og þá er lokað bæði í Seljaskóla og Vinaseli

Það er best að hringja í mætingarsímann okkar ef þið þurfið að heyra í okkur eftir hádegi: 664-4330

Við bendum á að ef það á að breyta um dagafjölda í Vinaseli þá þarf að gera það fyrir 15. hvers mánaðar.

Tölvupósturinn er lesin fyrir til klukkan 12:00.

Nýlegar færslur
Contact Us

We're not around right now. But you can send us an email and we'll get back to you, asap.

Ólæsilegt? Breyttu textanum. captcha txt