Heill dagur , síðasti dagurinn í vetrastarfinu og sumarstarfið .

 í flokknum: Vinasel

-Síðasti dagurinn í vetrastarfinu í Vinaseli er föstudagurinn 3. júní. Sumarstarfið hefst svo þann 9. júní. Nánari upplýsingar um sumarstarfið hjá okkur og annað sem er að gerast í borginni í sumar er á www.fristund.is.

-31. maí er skipulagsdagur í Seljaskóla.  Þá er hægt að skrá börnin í lengda viðveru í Vinaseli. Það er hægt að skrá börnin hálfan eða heilan dag og líkur skráningu 24. maí. Á heilum dögum þarf að skrá börnin sérstaklega óháð því hvort barnið er hálfan eða heilan dag. Foreldrar þurfa að greiða aukalega fyrir tíma fyrir hádegi og ef barnið á ekki pláss á þessum dagi. Skráningin fer fram á Vala.is, við munum ekki taka við óskráðum börnum. Börnin eiga að vera með tvö nesti og klædd eftir veðri. Við bendum foreldrum á að það hefur komið oftar en einu sinni fyrir að foreldrar halda að þeir hafi skráð barnið en eitthvað farið úrskeiðis í ferlinu. Þannig að ef þið hafið ekki fengið staðfestingu í tölvupósti þá er barnið ekki skráð.

-Það þarf að sækja um fyrir börnin fyrir veturinn 2022-2023, það gerist ekki sjálfkrafa. Þau börn sem eru að klára 2. bekk fara í frístundaheimilið Regnbogann sem er safnfrístund fyrir 3.-4. bekk í Selja- og Ölduselsskóla. Við hvetjum fólk til þess að sækja um sem fyrst. Það hjálpar okkur mikið að undirbúa næsta vetur að vita hversu mörgum börnum við eigum von á og það minnkar líkurnar á að börnin fari á biðlista í byrjun vetrar.

Nýlegar færslur
Contact Us

We're not around right now. But you can send us an email and we'll get back to you, asap.

Ólæsilegt? Breyttu textanum. captcha txt