Kærleiksdagur Miðbergs

 í flokknum: Álfheimar, Bakkasel, Bakkinn, Hellirinn, Hólmasel, Hraunheimar, Hundraðogellefu, Regnboginn, Vinaheimar, Vinasel

Þann 7. desember nk. verður Kærleiksdagur Miðbergs haldinn í sal Hólabrekkuskóla frá klukkan 14-16.

Happdrætti með veglegum vinningum

Kökubasar

Listaverk eftir börnin til sölu.

https://www.facebook.com/events/436448287289134/

Í ár ætlum við að styrkja sjóð sem kallast „Að grípa Ljónshjartabörn“

Ljónshjarta er stuðningsfélag fyrir ungt fólk sem misst hefur maka og börn þeirra. Makamissir í blóma lífsins er eitt mesta áfall sem hægt er að verða fyrir á lífsleiðinni. Það tekur mjög á að vera í sorg og sinna á sama tíma börnum og heimili.

Ágóði söfnunarinnar fer í sjóð sem kallast „að grípa Ljónshjartabörn“. Markmið sjóðsins er að veita Ljónshjartabörnum aðstoð sem allra fyrst eftir missi.  Aðstoðin er fólgin í samtalsmeðferð og ráðgjöf frá fagaðila.  Það er mikilvægt að grípa Ljónshjartabörn eftir andlát foreldris og veita þeim viðeigandi stuðning.

Stuðningsfélagið Ljónshjarta var stofnað í nóvember 2013 og hefur það meginmarkmið að að veita jafningjastuðning, fræðslu, upplýsingaöflun og samveru. Félagið skapar vettvang fyrir samverustundir og býður upp á fjölbreytta dagskrá þar sem félagsmenn og börn félagsmanna hittast og njóta þess að vera saman.

Nýlegar færslur
Contact Us

We're not around right now. But you can send us an email and we'll get back to you, asap.

Ólæsilegt? Breyttu textanum. captcha txt