Kosningar, lokað á fös og heill dagur

 í flokknum: Vinasel

Í síðustu viku fengu börnin að kjósa um dagskrá fyrir fimmtudaginn og hvað væri í matinn. Við leituðum jafnframt til þeirra um hvað ætti að kjósa um. Þau völdu pizzu í matinn og eftir pizzaátið horfðu þau á mynd og skreyttu muffins.

 9. október er lokað hjá okkur í Vinaseli vegna starfsdags.

 21. október er heill dagur hjá okkur í Vinaseli. Skráning er til 16.10.20. Á heilum dögum þarf að skrá börnin sérstaklega. Foreldrar þurfa að greiða aukalega fyrir tíma fyrir hádegi og ef barnið á ekki pláss á þessum dagi. Skráningin fer fram á umsokn.fristund.is, við munum ekki taka við óskráðum börnum. Foreldrar þurfa að skrá börnin sama hvort þau séu allan daginn eða fyrir eða eftir hádegi. Börnin eiga að vera með tvö nesti og klædd eftir veðri. Við bendum foreldrum á að það hefur komið oftar en einu sinni fyrir að foreldrar halda að þeir hafi skráð barnið en eitthvað farið úrskeiðis í ferlinu. Þannig að ef þið hafið ekki fengið staðfestingu í tölvupósti þá er barnið ekki skráð.

Eftir heila daginn er vetrarfrí og þá er lokað í Vinaseli og í Seljaskóla.

Við bendum á að ef það á að breyta um dagafjölda í Vinaseli þá þarf að gera það fyrir 15. hvers mánaðar.

Tölvupósturinn er lesin fyrir til klukkan 12:00. Ef þið þurfið að koma upplýsingum til okkar eftir þann tíma þá þurfið þið að hringja.

Nýlegar færslur
Contact Us

We're not around right now. But you can send us an email and we'll get back to you, asap.

Ólæsilegt? Breyttu textanum. captcha txt