Lokað á morgun í Vinaseli ofl.
Við minnum á á það er lokað í Vinaseli á morgun, 3. nóvember, en það er hefðbundinn skóladagur. ÍR rútan mun ekki ganga en það verða æfingar eins og vanalega
Við erum að byrja á tveimur spennandi verkefnum í þessari viku. Við ætlum ásamt öðrum frístundarheimilum í Breiðholti að setja upp Benedikt Búálf og byrja æfingar í vikunni. Sýningin verður að öllu óbreyttu 8. desember. Seinna verkefnið er líka leiklistartengt en við ætlum að búa til Skuggaleikhús og láta börnin föndra fígúrur og leikmynd og setja upp jólasögu sem við tökum síðan upp og gefum ykkur kost á að sjá.
Við erum búin að setja inn nokkrar myndir frá október á heimasíðuna okkar, m.a. frá bráðskemmtilegri hrekkjavöku gleði sem var á föstudaginn. Börnin mættu í glæsilegum búningum og það var hrekkjavöku diskó og föndur. Meira á https://midberg.is/fristundaheimili-6-9-ara/vinasel/
Minnum á heilan dag 25.11.2. Skráning fer fram á Vala.is