Lokað í Vinaseli á föstudaginn. Skráning á heila daga um jólin til 10.des.

 í flokknum: Vinasel

Við minnum á að það er lokað í Vinaseli núna á föstudaginn 26.12 vegna starfsdags.

Það eru samtals 9 heilir dagar í kringum jólin. 20.-23. des, 27.-30 og 3. jan. Skráning er hafin og líkur henni 10. des. Það er mikilvægt að fólk virði þessa dagsetningu því við þurfum að skipuleggja okkar starf eftir fjölda skráninga. Það er hægt að skrá börnin hálfan eða heilan dag.  Á heilum dögum þarf að skrá börnin sérstaklega óháð því hvort barnið er hálfan eða heilan dag. Foreldrar þurfa að greiða aukalega fyrir tíma fyrir hádegi og ef barnið á ekki pláss á þessum dagi. Skráningin fer fram á Vala.is, við munum ekki taka við óskráðum börnum. Börnin eiga að vera með tvö nesti og klædd eftir veðri. Við bendum foreldrum á að það hefur komið oftar en einu sinni fyrir að foreldrar halda að þeir hafi skráð barnið en eitthvað farið úrskeiðis í ferlinu. Þannig að ef þið hafið ekki fengið staðfestingu í tölvupósti þá er barnið ekki skráð. Þið getið afskráð barnið á Vala.is til 10. des.

Hólfaskiptingin er strembin fyrir alla, börn og starfsmenn, en hún hefur gengið allt í lagi það sem af er. Við vonum innilega að hún verði ekki lengur en til 8. des en það kemur í ljós. Við höfum ekki verið að nýta okkur Bláberið mikið heldur höfum við komist upp með að skipta börnunum í tvö hólf í Vinaseli sem er þægilegra fyrir starfið.

Nýlegar færslur
Contact Us

We're not around right now. But you can send us an email and we'll get back to you, asap.

Ólæsilegt? Breyttu textanum. captcha txt