Síðasti dagurinn til að skrá sig á heilan dag er í dag og dagskrá morgundagsins

 í flokknum: Vinasel
  1. mars er skipulagsdagur í Seljaskóla.  Þá er hægt að skrá börnin í lengda viðveru í Vinaseli. Það er hægt að skrá börnin hálfan eða heilan dag og líkur skráningu í dag. Á heilum dögum þarf að skrá börnin sérstaklega óháð því hvort barnið er hálfan eða heilan dag. Foreldrar þurfa að greiða aukalega fyrir tíma fyrir hádegi og ef barnið á ekki pláss á þessum dagi. Skráningin fer fram á Vala.is, við munum ekki taka við óskráðum börnum. Börnin eiga að vera með tvö nesti og klædd eftir veðri. Við bendum foreldrum á að það hefur komið oftar en einu sinni fyrir að foreldrar halda að þeir hafi skráð barnið en eitthvað farið úrskeiðis í ferlinu. Þannig að ef þið hafið ekki fengið staðfestingu í tölvupósti þá er barnið ekki skráð.

Á morgun ætlum við að gera okkur glaðan dag. Börnin fengu að koma með hugmyndir á mánudaginn og kusu síðan um hugmyndirnar í gær. Það sem bar sigur úr bítum var frekar klassískt eða pizza og bíómynd. Við ætlum síðan að vera með skemmtilega þrautar leiki (Minute to win it) ásamt hefðbundnara vali. Minnum á að láta okkur vita ef börnin ætla að sleppa æfingum til að taka þátt hjá okkur.

Það er best að hringja í mætingarsímann okkar ef þið þurfið að heyra í okkur eftir hádegi: 664-4330

Við bendum á að ef það á að breyta um dagafjölda í Vinaseli þá þarf að gera það fyrir 15. hvers mánaðar.

Tölvupósturinn er lesin fyrir til klukkan 12:00.

Nýlegar færslur
Contact Us

We're not around right now. But you can send us an email and we'll get back to you, asap.

Ólæsilegt? Breyttu textanum. captcha txt