Stjörnupartý á morgun, hæfileikakeppnin og konudagskaffi.

 í flokknum: Vinasel

Við hvetjum foreldra til þess að koma í dag og skoða óskilamunina okkar. Þeir eru aðgengilegri í dag til að fyrir ykkur til þess að koma og skoða.

Á morgun verður stjörnupartý. Börnin fengu að kjósa um hvað þau vildu gera og fyrir valinu var að horfa á bíómynd, skreyta muffins og það verða pylsur í matinn. Ef barnið ykkar ætlar að sleppa íþróttum til þess að taka þátt þá megið þið endilega senda okkur línu.

Á föstudaginn verður Breiðholts got talent sem er hæfileikakeppni frístundaheimilana í Breiðholti. Vinasel sendir tvö atriði í keppnina og erum við spennt að sjá.

20. febrúar verður konudagskaffi í Vinaseli, hvetjum allar mæður, systur, ömmur og aðra áhugasama að kíkja til okkar. Kaffið verður milli 16:30-18:00.

Það er vetrarfrí í Seljaskóla og Vinaseli 23. og 24. febrúar. Þá er lokað á báðum stöðum.

Nýlegar færslur
Contact Us

We're not around right now. But you can send us an email and we'll get back to you, asap.

Ólæsilegt? Breyttu textanum. captcha txt