Vikan 14. – 18. mars

 í flokknum: Álfheimar

Kæru foreldrar/forráðamenn

Í þessari viku erum við með hefðbundið val, ásamt því verðum við með yoga klúbb, skartgripagerð/vinaarmbönd, beyblade klúbb og  fleira skemmtilegt 😊

Á fimmtudaginn ætlum við að gera okkur glaðan dag og breyta aðeins út af því hefðbundna, þar sem við ætlum að fara í leikinn floor is lava. Starfsfólk mun undirbúa þrautabraut fyrir börnin auk þess hafa börnin komið að undirbúningi og er mikil spenna fyrir þessum tiltekna degi í hópi barnanna.

Minnum á að lokadagur til að skrá á heila daginn 21. mars er að miðnætti í kvöld. Við minnum á að skráning er bindandi og ekki er hægt að afskrá eða skrá eftir þann tíma.

Leiklistaræfingarnar eru í fullu gangi þessa dagana, leiklistasýningin verður 1. apríl og sýna börnin leikritið Ávaxtarkarfan.

Við viljum minna á að mikilvægt sé að börnin séu með aukaföt í töskunni ásamt regnfötum og/eða öðrum hlýjum fatnaði, þar sem að við reynum að nýta okkur útiveruna vel á þessum tímum.

Dagskrá vikunnar er að finna hér fyrir ofan.

Eigið góða viku sem fram undan er.

Kær kveðja Starfsfólk Álfheima

Nýlegar færslur
Contact Us

We're not around right now. But you can send us an email and we'll get back to you, asap.

Ólæsilegt? Breyttu textanum. captcha txt