Vikan 20-21 september

 í flokknum: Álfheimar
Kæru foreldrar og forráðamenn
Nú er komin ný vika hér í Álfheimum og margt skemmtilegt verður í boði. Það sem verður í boði ásamt almenna valinu verður t.d. íþróttaklúbbur í salnum á þriðjudaginn, á miðvikudaginn verður handavinnuklúbbur þar sem að börnin halda áfram með vinaböndin sín og á fimmtudaginn verður söngklúbbur.
Á föstudaginn 24. september er heill dagur hér í Álfheimum og minnum við því á að þau börn sem eru skráð þann dag þurfa að koma með tvö nesti (morgunnesti og hádegis nesti) auk þess að vera klædd eftir veðri. Búið er að loka fyrir skráningu á þeim degi og ekki verður hægt að taka á móti óskráðum börnum á þessum degi.
Við viljum minna á að mikilvægt er að börnin séu með auka föt í töskunni ásamt regnfötum þar sem það er spáð rigningu næstu daga.
Kær Kveðja starfsfólk Álfheima
Nýlegar færslur
Contact Us

We're not around right now. But you can send us an email and we'll get back to you, asap.

Ólæsilegt? Breyttu textanum. captcha txt