vikan 4.-8. apríl

 í flokknum: Álfheimar

Kæru foreldrar/forráðamenn

Í þessari viku erum við með hefðbundið val, ásamt því verðum við með listahugleiðslu, skartgripagerð, beyblade klúbb og fleira skemmtilegt.

Mars mánuður er búinn að vera viðburðaríkur mánuður hjá okkur í Álfheimum. 2. mars vorum við með öskudagsskemmtun sem var virkilega skemmtilegt, börnin mættu sem alskyns fígúrur sem var gaman að sjá. 10. mars vorum við svo með stjörnu partý, sem gekk vel og var virkilega skemmtilegur dagur og er mikil spenna að halda slíkan dag aftur sem fyrst 😊 Við vorum einnig með floor is lava, þar sem börn og starfsfólk sameinuðu krafta sína í að undirbúa salinn fyrir daginn. Börnin skemmtu sér konunglega, ásamt starfsfólkinu þennan dag. Myndir af þessum degi er kominn inná heimasíðuna okkar, https://midberg.is/fristundaheimili-6-9-ara/alfheimar/myndaalbum/#
Við viljum svo líka þakka foreldrum og aðstandendum fyrir komuna á leikritið Ávaxtakarfan sem var síðast liðin föstudag. Börnin stóðu sig eins og hetjur á sviðinu og erum við starfsfólk virkilega ánægð með frammistöðu þeirra <3

Skráning á heilu dagana um páskana líkur að miðnætti í kvöld, þetta eru dagarnir 11., 12. og 13. apríl. Ekki er hægt að taka á móti óskráðum börnum eftir þann tíma, né af skrá börnin á þessum dögum eftir þann tíma. Minnum á að börnin þurfa að taka með sér tvö holl og góð nesti fyrir þessa daga auk þess hlý föt og auka föt til skiptanna. Slóðin á skráningu á heilu dögunum er hér: https://innskraning.island.is/?id=valais&path=%2fvala-fristund-vetur

Við viljum minna á að mikilvægt sé að börnin séu með aukaföt í töskunni ásamt regnfötum og/eða öðrum hlýjum fatnaði, þar sem að við reynum að nýta okkur útiveruna vel á þessum tímum.

Dagskrá vikunnar er að finna hér fyrir ofan.

Eigið góða viku sem fram undan er.

Kær kveðja Starfsfólk Álfheima

Nýlegar færslur
Contact Us

We're not around right now. But you can send us an email and we'll get back to you, asap.

Ólæsilegt? Breyttu textanum. captcha txt