Vikan 7.-11. febrúar

 í flokknum: Álfheimar

Kæru foreldrar/forráðamenn

Í þessari viku erum við með hefðbundið val, ásamt því verðum við með allskyns handavinnu og listsköpun, einnig ætlum við að bjóða uppá legóklúbb.

Við erum enn með hólfaskiptingu í gangi hér í Álfheimum, 1. og 2. bekkur í sitthvoru hólfinu þar til við erum komin undir 50, þá sameinumst við. Við reynum okkar besta að halda starfinu uppi og hafa það sem skemmtilegast fyrir börnin en þessar aðstæður geta gert okkur svolítið erfitt fyrir, sérstaklega þegar að við erum að missa starfsfólk í veikindi, því væri gott ef að þið getið haldið áfram að vera dugleg að láta okkur vita um fjarvistir þannig að við getum skipulagt okkur út frá því. Við viljum benda á að best er að senda okkur póst á alfheimar@rvkfri.is fyrir hádegi ef börnin eru veik eða í leyfi, eða eftir kl 13:00 að hringja í Álfheima símann 664-4304 til að tilkynna fjarveru <3

17. og 18. febrúar er vetrafrí og er því lokað í Álfheimum.

Við viljum minna á að mikilvægt sé að börnin séu með aukaföt í töskunni ásamt regnfötum og/eða öðrum hlýjum fatnaði, þar sem að við reynum að nýta okkur útiveruna vel á þessum tímum.

Dagskrá vikunnar er að finna hér fyrir ofan.

Eigið góða viku sem fram undan er.

Kær kveðja Starfsfólk Álfheima

Nýlegar færslur
Contact Us

We're not around right now. But you can send us an email and we'll get back to you, asap.

Ólæsilegt? Breyttu textanum. captcha txt