Frítíminn er í nútímaþjóðfélagi góður vettvangur fyrir uppeldisstarf þar sem áhersla er lögð á aukinn þroska og færni með fjölbreyttum viðfangsefnum og
reynslunámi. Í frístundastarfi er lögð áhersla á að vinna með sjálfsmynd, umhyggju, félagsfærni og virkni og þátttöku.
Fagskrifstofa SFS leiðir stefnumótun og hefur yfirumsjón með frístundastarfi á vegum Reykjavíkurborgar fyrir börn og unglinga. Hlutverk skrifstofunnar er að efla og þróa fagumhverfi frístundastarfs með áherslu á börn og unglinga.
Þátttaka í ýmsum þverfaglegum samstarfsverkefnum er liður í því. Skrifstofan er ráðgefandi fyrir skóla- og frístundaráð.
Sjá nánar í starfsskrá frístundamiðstöðva og starfsáætlun Miðbergs hér að neðan.