Opnun Hólmasels
Í kvöld hefst vetrarstarf í félagsmiðstöðinni Hólmaseli að nýju. Mikil tilhlökkun er fyrir vetrinum og það er margt spennandi á döfinni. Dagskránna má finna hér á síðunni undir dagskrá hér fyrir ofan. Opnanir fyrir unglinga í 8.-10. bekk verður með sama sniði og síðasta vetur. Opið verður á mánudags, þriðjudags, miðvikudags og föstudagskvöldum frá kl. 19.30 – 22.00 nema á föstudögum er opið til 23.00. Opið er á dagvöktum frá 14.00-17.00 á mánudögum og miðvikudögum. Við höfum einnig bætt við opnun annan hvern fimmtudag klukkan 19:30-22 fyrir 10.bekk og 16-17 ára ungmenni í hverfinu. Því ættu allir að geta fundið tíma sem hentar til að kíkja við í Hólmasel. Tíu12 ára starfið hefst á fimmtudaginn og verður þrisvar í viku í vetur. Á þriðjudögum er opið fyrir 5. og 6. bekk kl. 14:30-16:30. Á fimmtudögum er opið fyrir 7.bekk á sama tíma, 14:30-16:30. Einnig verður opið fyrir 5., 6. og 7. bekk á föstudögum í vetur kl. 17:00-18:30.
Hlökkum til að sjá sem flesta.
Kveðja
Starfsfólk Hólmasels