Myndir frá apríl
Þá apríl á enda en þessi mánuður var mjög viðburðaríkur. Við byrjuðum mánuðinn á að halda upp á dag einhverfunnar, í tilefni af honum skreyttum við bollakökur með bláu kremi. Svo komu páskarnir en krakkarnir nutu sín vel í Hellinum á meðan skólinn var í fríi, það var meðal annars farið í keilu, búið til páskaegg, farið í sund og í bíó. Í apríl fóru krakkarnir líka í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn að skoða dýrin og nýju kiðlingana.
April ended up being a very eventful month. We started the month by celebrating the autism day with cupcakes with blue frosting. Then during Easter the kids had a lot of fun in Hellirinn while the schools were on break, they went bowling, made a homemade Easter egg, went swimming and to the movies. In April the kids in Hellirinn went to the family zoo, Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn to see the animals.