Leiksýning, kvikmyndahátíð, og heill dagur 24. maí.

 í flokknum: Vinasel

Á morgun, 8. maí, er leiksýning sem börnin í 2. bekk hafa verið að æfa. Sýningin hefst 15:30 og spennandi að sjá afraksturinn. Leikstjórinn er hún Karen, nemandi í 8. bekk í Seljaskóla, sem hefur verið að koma 1-2 í viku seinni hluta vetrar.

Á fimmtudaginn, 9. maí, er kvikmyndahátíðin Filman í Sambíóunum í Álfabakka, þar sem börn í frístundaheimilum í 3. og 4. bekk sýna afrakstur kvikmyndaklúbbs sem þau hafa verið með í vetur. Krökkunum í 2. bekk í Vinaseli er boðið að koma og horfa á myndirnar. Við leggjum af stað strax eftir að skóla líkur og verðum komin um klukkan 16:30. Þau börn sem eru skráð í tómstundir(íþróttir, tónskóla osfrv.) verða send í þær og koma þar af leiðandi ekki með í bíó nema við fáum upplýsingar um annað. Ef börnin eiga ekki að fara með í ferðina þá megið þið endilega láta vita.

Það er heill dagur framundan í Vinaseli, 24. maí. Skráningu líkur 20. maí. Á heilum dögum þarf að skrá börnin sérstaklega. Foreldrar þurfa að greiða aukalega fyrir tíma fyrir hádegi og ef barnið á ekki pláss á þessum dagi. Skráningin fer fram á umsokn.fristund.is, við munum ekki taka við óskráðum börnum. Foreldrar þurfa að skrá börnin sama hvort þau séu allan daginn eða fyrir eða eftir hádegi. Börnin eiga að vera með tvö nesti og klædd eftir veðri.

Nýlegar færslur
Contact Us

We're not around right now. But you can send us an email and we'll get back to you, asap.

Ólæsilegt? Breyttu textanum. captcha txt