Þessi vika er í styttra lagi en lokað er hjá okkur á föstudaginn vegna starfsdags frístundaheimilanna og síðan tekur við vetrarleyfi 25-26. febrúar en þá er einnig lokað hjá okkur í Regnboganum.

Núna á miðvikudaginn ætlum við að hafa Góukaffi í Regnboganum frá kl. 15:30-16:30 en þá bjóðum við mæðrum, ömmum eða frænkum að koma í heimsókn og eiga góða stund með börnunum.