Foreldrakaffi og páskafrí.
Á fimmtudaginn 6.4. verður foreldrakaffi í Vinaseli. Það verður frá 16:30 til klukkan 18:00. Við verðum með föndur og ýmislegt skemmtilegt í boði fyrir foreldra og börn. Vonandi sjáum við sem flesta.
Við minnum á skráninguna fyrir páskana. Það eru dagarnir: mánudagurinn 10. apríl, þriðjudagurinn 11. apríl og miðvikudagurinn 12. apríl. Skráningin hefst í dag. Við biðjum foreldra að skrá börnin sín samviskusamlega og bendum á að ef þú hefur ekki fengið staðfestingapóst þá er barnið ekki skráð. Ef þið lendið í vandræðum með að skrá börnin getið þið alltaf leitað til okkar og fengið aðstoð. Síðasti dagur til að skrá sig er mánudagurinn 3. apríl. Skráningin fer fram á Rafrænni Reykjavík eða á umsokn.fristund.is