Íþróttavikan og heill dagur .
Það er skipulagsdagur í Seljaskóla 9. október og þá verður heill dagur í Vinaseli. Á heilum dögum er lokað í skólanum en opið í Vinaseli allan daginn þ.e.a.s. frá kl. 8:00 – 17:00. Þessa daga þarf að skrá barnið sérstaklega og greiða fyrir sérstaklega. Síðasti dagurinn til þess að skrá barnið er 2. október. Þið skráið ykkur inn á Rafræna Reykjavík eins og þegar þið sóttuð um frístund upphaflega og veljið þar að skrá í lengda viðveru. Þar veljið þið dag og hvort barnið á að vera heilan eða hálfan dag. Ef þið þurfið aðstoð getið þið haft samband.
Íþróttavikan gekk ljómandi vel þrátt fyrir að veðrið væri ekki með besta móti. Við ætlum að hafa bandí aftur í þessari viku þar sem börnin höfðu mikinn áhuga á því og fannst það skemmtilegt og spennandi