Nýjir klúbbar, páskar nálgast og myndasöguþema
Við erum að byrja með nýja klúbba þessa vikuna. Börnin hafa valið sér tvo klúbba til að taka þátt í.
Klúbbarnir sem eru að byrja eru:
– Íþróttaklúbbur
– Kaffihúsaklúbbur
– Njósnaraklúbbur
– Tölvuklúbbur
– Ævintýraklúbbur
– Ferðaklúbbur
– JustDanceklúbbur
Einnig erum við með þemað okkar, þar sem öllum börnum er frjálst að taka þátt í myndasögugerð. Þau læra að búa til karaktera, búa til sögur og setja upp myndasögurnar.
Einnig erum við með útinámsval þar sem öllum börnum stendur til boða að taka þátt í fjölbreyttu útinámsvali.
Nú styttist óðum í páskana og hefur verið opnað fyrir skráningu á þessa þrjá heilu dagana sem eru í kringum páskana. Allra seinasti skráningardagur á heilu dagana er mánudagurinn 3.apríl.
Við ætlum að fara vinna meira með útileiki í útiverunni og gaman ef þið mynduð kenna börnunum skemmtilega leiki frá því þið voruð börn og segja þeim að koma með þá leiki í Álfheima
Foreldrar hafa verið duglegir að hafa samband við okkur fyrir klukkan 13:00 á daginn ef einhverjar breytingar eru á vistun barnanna þann daginn. Það munar svo miklu að minnka áreitið á Álfheima símann meðan við erum í starfinu.
Bestu stuðkveðjur úr Álfheimum
Starfsfólk Álfheima