Kæru foreldrar/forráðamenn
Í þessari viku erum við með hefðbundið val, ásamt því verðum við með listahugleiðslu, söngklúbb og Beyblade klúbb.
Fimmtudaginn 26.maí er lokað í skólanum og í Álfheimum.
Síðasti dagur í frístundaheimilinu fyrir sumarfrí er föstudagurinn 3. júní.
Við viljum minna á að mikilvægt er að börnin séu með aukaföt í töskunni ásamt regnfötum og/eða öðrum hlýjum fatnaði, þar sem að við reynum að nýta okkur útiveruna vel. Minnum á að Álfheimar eru símalaus eins og skólinn og eiga því símar og síma úr að vera í töskunni á meðan börnin eru í Álfheimum, ef að það þarf að koma skilaboðum til barnanna að hafa frekar samband við okkur og við komum því áleiðis til þeirra. Símanúmer Álfheima er 664-4304 og tölvupóstur alfheimar@rvkfri.is
Minnum á foreldra Facebook Álfheima https://www.facebook.com/groups/3013922632170565
Dagskrá vikunnar er að finna hér að ofan.
Eigið góða viku sem fram undan er.
Kær kveðja Starfsfólk Álfheima