Jólaföndur, heill dagur og foreldrakaffi| 28.11.2016

 í flokknum: Álfheimar

Nú er jólamánuðurinn að ganga í garð og mikil jólastemning að færast yfir börn og starfsmenn. Börnin munu vera búa til jólaföndur, jólagjafir, syngja jólalög og fleira tengt jólunum næstu vikur.
Í seinustu viku vorum við með náttfatadag, börnin máttu koma með náttföt og haldið var náttfatadanspartý í Álfheimum. Ferðaklúbburinn fór í ævintýraferð á köngulóavefinn. Við vorum með skemmtilega útiveru, listasmiðju, dans og allt frjálsa valið okkar.
Á miðvikudaginn er starfsdagur í skólanum og er frístund opin allan daginn fyrir þau börn sem var búið að skrá. Viljum minn á skráningu á lengda viðveru fyrir heilu dagana í desember þá er skólinn lokaður en opið hjá okkur gegn aukagjaldi fyrir allan daginn 1.910kr. Seinasti skráningardagur hjá okkur fyrir þessa lengdu viðveru er fimmtudagurinn 15.desember.
Í þessari viku ætlar ferðaklúbburinn að fara á kaffihús, söngklúbburinn að æfa lögin fyrir fimmtudaginn, á miðvikudaginn er heill dagur og á fimmtudaginn verður foreldrakaffi/föndur. Þá gefst foreldrum kostur á að koma í heimsókn í Álfheima og eiga gæðastund með börnunum sínum í þeirra umhverfi í frístundaheimilinu. Það verður hægt að föndra og gæða sér á smákökum. Foreldrar eru velkomnir í Álfheima milli 16-18.
Dagsetningar framundan:
– Heill dagur er 30.nóvember.
1.desember, foreldrakaffi og jólaföndur í Álfheimum.
– 8.desember – Jólahúfudagur.
– 22,23,24,27,28,29,30,31.desember og 2. Og 3.janúar eru Heilir dagar (Skólinn lokaður, Álfheimar opnir allan daginn gegn gjaldi (1.910kr per dag) um hátíðirnar, gott að fara leiða hugann að vistun fyrir þá daga. Búið er að opna fyrir skráningu þessa daga og er lokaskráningardagur á þessa heila daga er 15.desember.
Minnum á símanúmerin í Álfheimum og best er að hafa samband fyrir klukkan 13 með breytingar t.d á æfingum, labba/eða sóttur, einhver annar sækir og aðrar breytingar.
Álfheimar 664-4304 og 411-7553 alfheimar@reykjavik.is og tanja.osk.bjarnadottir@reykjavik.is

Bestu kveðjur
Starfsfólk Álfheima

Nýlegar færslur
Contact Us

We're not around right now. But you can send us an email and we'll get back to you, asap.

Ólæsilegt? Breyttu textanum. captcha txt