Vikann 24.-28. október

 í flokknum: Álfheimar

Kæru foreldrar/forráðamenn

Þó að vikan okkar sé stutt í annan endann þessa vikuna vegna vetrarleyfa þá er nóg um að vera 😊

Við höfum þurft að fresta haustkynningu á frístundaheimilinu, Ennnn…. nú er komið að því opið hús og kaffi fyrir foreldra á morgun fimmtudaginn 27.október frá kl  15 og 16:30. Þá geta foreldrar einhvern tímann á þeim tíma komið við og skoðað frístundaheimilið og kynnst umhverfinu sem börnin eru í dagsdaglega hjá okkur😊

Einnig eru ÓSKILAMUNIR gjörsamlega að fylla allt hjá okkur. Og því sendum við út ákall að koma og fara í gegnum óskilamunina hjá okkur. Við ætlum að dreifa og raða þeim alveg rosalega skipulaga upp og vonandi að sem flestir getið fundið muni barnanna sinna.

Á morgun er einnig bangsadagur, og ætlum við í Álfheimum að gera daginn enn meira spennandi því það verður BANGSASPÍTALI líka, þar sem börnin geta komið og fengið plástur eða sárabindi á bangsana. Þau voru mega spennt að heyra um Bangsaspítalann sem við erum búin að vera undirbúa.

Spennandi glænýr pokémon klúbbur hefst í næstu viku 😊

3.nóvember þá er lokað í frístundaheimilinu vegna starfsdags.

21.nóvember er heill dagur í Álfheimum, þá er hægt að skrá barnið í vistun heilan dag gegn gjaldi. Seinasti skráningardagur er 7.nóvember.

Þá eru ekki fleiri starfsdagar á þessu almanaksári. En skráning er hafin ef að þið óskið eftir vistun fyrir börnin í jólafríinu.

Það er kalt úti og börnin fara út 2 eða 3 svar í skólanum og svo aftur hjá okkur. Því viljum við ítreka að koma með hlýjan og góðan útifatnað ásamt aukafötum í töskuna ef að slys kemur fyrir.

SÍMAR, SÍMAÚR OG LEIKFÖNG. Biðjum við ykkur að geyma síma og símaúr heima, Hólabrekkuskóli er símalaus skóli og því eiga þessir munir að geymast heima. Ef að börnin eru með þessa muni í skólanum þá eiga þau að geymast ofan í tösku þar til þau fara heim og hægt er að stilla þau að þau opnist ekki fyrr en kl eitthvað ákveðið. Og þá biðjum við ykkur að hringja í Álfheima að láta vita þegar börnin eiga fara heim en ekki hringja í börnin sjálf. Eitthvað hefur borið á því að sum börn séu að koma með leikföng og pokemonspjöld heima. Það er ekki leyfilegt að koma með þá muni nema sérstaklega sé tekið fram að það sé dótadagur.

Ítrekum að merkja vel allan fatnað, nestis box, vatnsbrúsa, húfur og þess háttar.

Við minnum enn þá á að sækja um aðgang á Facebook síðu Álfheima, þeir sem eru með Facebook eða þeir sem að hafa ekki nú þegar sótt um aðgang  https://www.facebook.com/groups/584744923245327

Facebook Group for prents https://www.facebook.com/groups/584744923245327

 

Starfsfólk Álfheima

Nýlegar færslur
Contact Us

We're not around right now. But you can send us an email and we'll get back to you, asap.

Ólæsilegt? Breyttu textanum. captcha txt