Lokað í Vinaseli í vetrarfríi og starfsdagur í Vinaseli 3. nóvember .
Það er lokað í Vinaseli á föstudaginn. mánudaginn og þriðjudaginn (21.10.-25.10) út af vetrarfríinu. Við byrjum síðan aftur venjulegt starf á miðvikudaginn í næstu viku.
Það er lokað í Vinaseli 3. nóvember vegna starfsdags frístundamiðstöðvarinnar.
Næsti heili dagur er síðan 25. nóvember og það er búið að opna fyrir skráningu. Minnum á að það þarf að skrá barnið sama hvort það er heilan dag eða hálfan. Skráning fer fram á Vala.is.
Í síðustu viku þá vorum við að gera ýmislegt skemmtilegt eins og að vera með hið vinsæla krakka-kviss, útileiki og diskó. Í þessari viku verðum við með m.a. með skákklúbb, actionary og söguklúbb. Á heimasíðunni okkar (https://midberg.is/fristundaheimili-6-9-ara/vinasel/) er bæði hægt að finna nýtt kynningarmyndband og myndir úr starfinu.