Bolludagur, konudagskaffi og vetrarfrí.
Á þriðjudeginum Í síðustu viku var Valentínusardagurinn og þá var þvílíkt föndur fjör. Börnin fengu að föndra hjörtu og valentínusarkort. Við byrjuðum að föndra og skreyta töfrasprota í Harry Potter klúbbnum okkar og enduðum vikuna á diskó dans fjöri þar sem hlustað var á tónlist og farið í stopp dans.
Í dag er bolludagur og fá þá krakkarnir bollur hjá okkur að borða. Í dag er einnig Konudagskaffi Vinasels þar sem við hvetjum allar mömmur, ömmur, systur og öllum þeim sem vilja koma að kíkja í kaffi og föndur til okkar á milli 16:30 – 18:00. Hlökkum til að sjá sem flesta!
Á öskudaginn er svo hefðbundin frístundar opnun hjá okkur í Vinasel enn skertur dagur í skólanum. Á öskudaginn verður búningakeppni, slá köttinn úr tunnunni og búningaball! Ef barnið þitt á ekki að fara í íþróttir þennan dag endilega senda póst á okkur og láta okkur vita.
Vetrarfrí er í skólanum og í Vinasel 23.-24.febrúar og er þá lokað á báðum stöðum. Við tökum aftur á móti börnunum mánudaginn 27. febrúar.