Dagskrá, heill dagur og foreldrakaffi.

 í flokknum: Vinasel

Það er dagur mannréttinda barna 20. nóvember og og verður dagskrá vikunnar tengd honum. Við ætlum að gera verkefni tengd barnasáttmála Sameinuðuþjóðanna, láta börnin gera hugmyndakassa þar sem þau geta komið hugmyndum sínum á framfæri. Á miðvikudaginn eru kosningar þar sem þau fá að kjósa sér eitthvað skemmtilegt að gera á föstudeginum.

 27. nóvember er heill dagur hjá okkur í Vinaseli. Skráning er til 20. nóv. . Á heilum dögum þarf að skrá börnin sérstaklega. Foreldrar þurfa að greiða aukalega fyrir tíma fyrir hádegi og ef barnið á ekki pláss á þessum dagi. Skráningin fer fram á umsokn.fristund.is, við munum ekki taka við óskráðum börnum. Foreldrar þurfa að skrá börnin sama hvort þau séu allan daginn eða fyrir eða eftir hádegi. Börnin eiga að vera með tvö nesti og klædd eftir veðri. Við bendum foreldrum á að það hefur komið oftar en einu sinni fyrir að foreldrar halda að þeir hafi skráð barnið en eitthvað hefur klikkað í ferlinu. Þannig að ef þið hafið ekki fengið staðfestingu í tölvupósti þá er barnið ekki skráð.

 Við ætlum að byrja jólin snemma í Vinaseli og þann 28. nóvember er Jóla-foreldrakaffi í Vinaseli frá 16:00 til 18:00. Við ætlum að föndra og hafa gaman.

Tölvupósturinn er lesin fyrir til klukkan 12:00. Ef þið þurfið að koma upplýsingum til okkar eftir þann tíma þá þurfið þið að hringja.

Ef þið þurfið að nálgast okkur í síma þá eru þetta númerin sem hægt er að hringja í:

Fyrir hádegi: 411-5762

Eftir hádegi: 664-4330

Magnús Loftsson, forstöðumaður: 695-5038

Jolanta Maszkiewicz, aðstoðarmaður forstöðumanns: 664-7686

Við bendum á að ef það á að breyta um dagafjölda í Vinaseli þá þarf að gera það fyrir 15. hvers mánaðar.

Nýlegar færslur
Contact Us

We're not around right now. But you can send us an email and we'll get back to you, asap.

Ólæsilegt? Breyttu textanum. captcha txt